
mánudagurinn 3. október 2016
Gísli á Uppsölum - Aukasýning á Þingeyri
Á nýlokinni helgi var leikritið Gísli á Uppsölum sýnt í Félagsheimilinu á Þingeyri og var vel setið. Því hefur verið skellt á aukasýningu á Þingeyri. Sýnt verður fimmtudaginn 6. október kl.20. Miðasala er þegar hafin og fer fram á netinu. Það er auðvelt að tryggja sér miða bara vippa sér inná heimabankann og ganga frá greiðslunni.
Reikningur: 0156 26 64
Kennitala: 640401 2650
Miðaverð: 3.500.- kr
Einnig er hægt að panta miða í síma: 891 7025 en elskurnar takið eftir við erum EKKI MEÐ POSA.
Leikritið um Gísla á Uppsölum hefur fengið góða dóma hjá áhorfendum einsog lesa má hér:
,,Mæli svo með þessari sýningu. Þingeyringar og nærsveitungar, látið ekki Gísla á Uppsölum hlaupa frá ykkur."
,,Stórkostlegt einu orði sagt!"
,,Þessi sýning kom við allan tilfinningaskalann."
,,Mæli hiklaust með sýningunni sem er allt frá því að vera afar sorgleg upp í bráðskemmtileg."
03.12.2019 / 23:11
Leppalúði í Borgarnesi
Jólaleikritið Leppalúði verður sýnt í Borgarnesi miðvikudaginn 4. desember kl.17.30. Sýnt verður í Félagsmiðstöðinni Óðal og allir eru velkomnir, miðaverð er aðeins 2.500.- krónur. Miðasala fer fram við innganginn á sýningardegi og já það er posi á staðnum. Leppalúði ... Meira29.11.2019 / 21:42