|
31. 08 2010. 15:36 Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins Kómedíuleikhúsið hefur stofnað leiklistarskóla sem hefur starfsemi sína í september. Um er að ræða alhliða leiklistarnám fyrir alla aldurshópa eða frá 5 ára og uppúr. Sérstakur kynningarbæklingur um skólann er væntanlegur úr prentun á allra næstu dögum og verður sendur sjóðheitur inná öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum. Skólinn er til húsa í Listakaupstað, Norðurtangahúsinu, á Ísafirði og þann 11. september verður opið hús þar sem áhugasamir geta kynnt sér skólann. Sama dag hefst skráning á námskeið skólans en fyrstu námskeiðin hefjast 20. september en skólasetning verður þann 19. Aðalkennarar við Kómedíuskólann eru þeir Elfar Logi Hannesson og Ársæll Níelsson sem báðir eru menntaðir í Kómedíuskólanum í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um Leiklistarskóla Kómedíuleikhússins verður að finna hér á heimasíðunni á næstu dögum. Gaman er að geta þess að Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins er fyrsti leiklistarskóli Vestfjarða. En áhugasamir mega alveg byrja að skrá sig eða fá nánari upplýsingar með því að senda okkur tölvupóst á netfangið komedia@komedia.is
Það er Menningarráð Vestfjarða sem styrkir stofunun Leiklistarskóla Kómedíu og þökkum við mikið vel fyrir þeirra framlag og trú á verkefninu.
|