HUGSAÐ UPPHÁTT
10. 09 2007. 10:36 KRAFTAVERK Í SELÁRDAL Í sumar skrapp ég á æskustöðvarnar og brugðum við okkur familían í leiðinni inní Selárdal í Ketildölum í Arnarfirði. Höfum reyndar farið þangað ótal sinnum til að skoða þennan sögufræga stað já má segja að þetta hafi verið vinsæll sunnudagsrúntur. Selárdalur er engin venjulegur dalur enda hafa þar margir galdramenn verið s.s. Árum Kári, fræðimenn séra Páll Björnsson, skáld Jón Þorláksson sem flestir þekkja sem Jón á Bægisá, stjórnmálamenn Hannibal Valdimarsson og þar bjó líka einbúinn Gísli á Uppsölum. Einn er ótalin og er það sá sem hefur dregið þúsundir ferðamanna í dalinn síðustu áratugi. Það er listamaðurinn Samúel Jónsson sem var kallaður Listamaðurinn með barnshjartað. Hann reisti þar eigið listasafn og það þegar hann var komin yfir miðjan aldur eða á árunum 1947 -1967. Þetta safn er engu líkt. Fullt af styttum á borð við sel og kappann Leif heppna og stórkostlegur ljónagosbrunnur. Þar að auki byggði hann sér einstakt hús sem átti að vera listasafn en náði þó ekki að ljúka því. Hann byggði líka kirkju og sagan á bak við tilurð hennar er náttúrulega engu lík einsog listamanninum hættir. Hann hafði gert altaristöflu og vildi færa Selárdalskirkju hana en þar var hins vegar tafla fyrir og var því gjöfin afþökkuð. Hvað átti þá að gera? Jú, auðvitað bara byggjað kirkju fyrir altaristöfluna. Og það gerði Samúel. Þetta einstaka listasafn lá í niðurníðuslu í mörg ár. En það eru sem betur fer enn til hugsjónamenn. Fyrir nokkrum árum tók hópur manna sig saman um að byggja upp safnið á nýjan leik og nefnist hópurinn Félag um endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal. Fjölmargir hafa stutt verkefnið bæði ríki og fyrirtæki (en þó mættu báðir taka ennfrekar upp budduna) og svo hefur þýskur listamaður að nafni Gerrhard Köning komið vestur ásamt fríðu föruneyti og byggt upp verkin og húsin. Ég á aðeins eitt orð til að lýsa dugnaði hópsins og það er BRAVÓ. Þegar ég kom þarna í sumar féllust mér alveg hendur. Vá, vá, hljómaði um dalinn þetta er göldrum líkast einsog við á í Selárdal. Rúsínan í pylsuendanum var að koma inní kirkjuna þar sem var einstök sýning um listamanninn s.s. blaðagreinar og svo geggjuð myndlistarsýning en Samúel var skemmtilegur málari. Sérlega gaman var svo að skoða gestabókina sem var no. 2 þetta sumarið og sjá allan þann fjölda sem kemur að skoða safnið. Sko ef þetta er ekki Menningartengd ferðaþjónusta þá veit ég ekki hvað. Hér er einstakt tækifæri til að byggja upp veglegt safn og möguleikarnir eru óteljandi. Í þessum fagra firði hefur skórinn minnkað og þrengst meira en góð hófu gegnir. En hér er möguleiki á að byggja upp og skapa atvinnu. Ég sé fyrir mér að þarna gætu allavega 5 manns starfað yfir ferðamannatímann. Veitt leiðsögn um safnið og hvað þá dalinn allan ég meina Árin Kári og galrarnir, Gísli á Uppsölum sagan er þarna bara um allt. Einn mundi starfa sem leikari og vera með sýningu á hverjum degi byggða á ævi Samúels eða einhverju öðru Seldærsku. Svo væri náttúrulega geggjað að vera með lítinn kaffiskála þarna og þar væri þriðji starfsmaðurinn kominn. Það er endalaust hægt að fabúlera með þetta og ef einhver tæki mig á orðinu og skellti þessu í framkvæmd þá yrði nú fjör og ég mundi glaður taka þátt í því ævintýri. Félagið góða sem unnið hefur þetta kraftaverk í Selárdal ætlar enn að halda áfram uppbyggingunni og við sem heima sitjum og höfum notið þessa frábæra safns getum nú stutt þetta verkefni með því að leggja inná reikning þeirra sem er: 512-26-4403. Kennitala: 440398-2949. Og munið það er hugurinn sem skiptir máli í krafti fárra króna. Safnast þegar....osfrv.
05. 05 2007. 14:47 PAKKAÐU NIÐUR OG KOMDU Á ÍSÓ Það var mjög gaman að skoða nýtt tölublað Bæjarins Besta, BB, sem er reyndar yfirleitt en nú var sérlega mikið af gleðilegu efni. Heill hellingur af atvinnuauglýsingum og í boði er fjölbreytt vinna allt frá starfi hjá Sýslumanni til kennarastarfa. Nú er bara að pakka niður í tösku og flytja á ísó. Þetta er jú alveg frábær bær góðir skólar allt frá leik- til menntaskóla, frábær tónlistarskóli (sá elsti á landinu), flott bíó og síðast en ekki síst fullt af menningu og listum. Ég held að ég sé nú ekkert að ýkja hér um of kannski frekar að þetta sé vægt til orða tekið. Allaveg mæli ég hiklaust með ísó, ég flutti hingað ásamt minni familý árið 2000 og hafa árin sjö verið skemmtileg og ég hlakka mikið til næstu 70 ára eða svo. Einsog ég hef talað um áður þá er Ísafjörður kjörinn staður fyrir atvinnulistamenn og konur. Þetta er flottur staður til að skapa og íbúar sýna brölti þínu áhuga og skilning. Óþarfi svosem að telja alla kosti menningarbæjarins aftur og enn þó aldrei sé góð vísa of oft kveðinn. Listamenn geta komið list sinni á framfæri útum allt s.s. haldið tónleika eða leiksýningu í Hömrum nú eða Edinborg sem verður opnuð með pomp og pragt í sumar og þá erum við sko að tala um alvöru leikhús. Hér er gallerý Slunkaríki einnig geta myndlistarmenn sýnt á Langa Manga og síðast en ekki síst er mikið af skemmtilegu húsnæði allt um kring. Mæli sérstaklega með Félagsheimilinu á Þingeyri sem er alltof lítið notað í listinni. Þar er flott leiksvið og ekki sakar að tjöldin á sviðinu eru úr Þjóðleikhúsinu. Það er líka hægt að skreppa til Bolungarvíkur og sýna á kaffihúsinu þar, í Súðavík þar er frábært félagsheimili sem verður reyndar einnig kaffihús núna í sumar mjög spennandi. Ekki má gleyma Flateyri sem minnir mig alltaf á minn gamla heimabæ, Bíldó, þar er nýbúið að gera flott félagsheimilið sem er með lítið og krúttlegt svið. Vagninn stendur þarna enn þó hjólin hafi stöðvast um stund. Svo er líka skemmtilegt alþjóðlegt brúðusafn þarna. Á Suðureyri er verið að gera stórkostlega hluti með Sjávarþorpið Suðureyri þar eru mikilir hugsjónarmenn á ferð og þetta er aðdáunarvert framtak í þágu ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum. Á Suðureyri er gamalt félagsheimili sem er nú soldið í pásu um hvað verður gert við það en án efa yrði leift að hafa þar einhverskonar happening s.s. listanámskeið eða skygnilýsingar. Þannig að allt í kring er nóg af húsnæði til að sprella í og þetta er ekki allt, sveitirnar eru eftir s.s. Haukadalur þar er meira að segja félagsheimili, Núpur sem er reyndar til sölu núna það er líka geggjaður staður og Holt í Önundarfirði má líka nefna auk alls hins. Og enn er hægt að halda áfram því það er ekki langt að fara á Bíldó, Patró og Tálknó og þar eru fullt af sýningarhúsnæði. Semsagt fjölbreytt og spennandi og ekkert eftir nema bjóða þig velkomin í bæinn. Sjáumst á Ísó.
25. 04 2007. 14:29 Æ ÞESSIR GAGNRÝNENDUR Ekki ætla ég nú að fara að agnúast útí gagnrýnendur. Ég meina til hvers? Þeir eru nú bara að gera vinnu sína. Verst hvað þeir eru slappir í henni og halda fram ýmsu sem á ekki við rök að stiðjast. Í dag er t.d. krítik um Skrímslin þar sem krídeker setur út á að það sé verið að svíkja börnin. Þetta sé ekki barnasýning. Enda hefur því ekki verið haldið fram af Kómedíuleikhúsinu í neinni kynningu. Kannski heldur krídekið bara að af því að sýningin var í Möguleikhúsinu, sem er jú barnaleikhús, þá sé um barnaleikrit að ræða. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem þeir koma með rangfærslur á borð við þessa. Þeir fá nú ábyggilega lítið borgað fyrir að pára þessar línur og því óþarfi að vera kynna sér efnið eitthvað heldur bara ljúka skrifunum af. En nú er ég farin að pára það sem ég ætlaði ekki að gera, en ég bara varð að benda a þetta þar sem leiðinlegt er að lesa eitthvað sem er ekki rétt. Ég er hins vegar kampakátur með viðtökur á þessari umræddu sýningu voru áhorfendur mjög kátir og mikið var hlegið og fólk virtist skemmta sér hið mesta. Sama má segja af skólasýningunum sem hafa verið. Afhverju er maður þá að fárast útí þessa einu sál sem reyndar skrifar í dagblað. Smekkur manna er jú misjafn og þó að þessum eina sé ekki skemmt þá er það jú bara einn. Að mínu áliti á gagnrýni að vera uppbyggileg, benda á kosti og galla. En ég meina er nokkur sem er að grúska í þessum dómi þetta eru jú einhverjar fleygar setningar á blaði og þykir einhverjum gott ef hægt er að hafa þær negatívar til að selja snepilinn jafnvel þó hann sé gefins. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hef verið voða lélegur í að lesa dóma núna í vetur og sennilega á það við um fleiri. Afhverju skyldi það nú vera? Ég veit ekki kannski er það vegna fyrr nefndra orða. Til að ljúka þessu þá held ég að maður ætti bara að hætta að lesa þessa gagnrýni, mæta heldur í leikhúsið og láta koma sér á óvart.
20. 04 2007. 21:58 AÐ SVARA TÖLVUPÓSTI Netið er alveg magnað tæki og þá sérrílagi tövlupósturinn ég nota hann mjög mikið enda miklu þægilegra en að vera með tólið (þ.e. símann) á lofti allan daginn. En það er hinsvegar eitt sem fer alveg fjarskalega í taugarnar á mér það er þegar menn svara ekki tövlupósti. Þá er ég ekki að tala um Nígeríuviagra pósta. Heldur bara tölvupósta frá venjulegu fólki. Ég meina að hverju þá að vera með netfang ef maður svarar ekki póstinum sem maður fær. Mín regla er að svara öllum tölvupóstum sem ég fæ að undanskildum náttúrulega áðurnefndum Nígeríudóti. Það hlýtur að teljast bara til nútíma kurteisi að gera það. Það þarf ekkert að vera langorður einfaldlega er þetta staðfesting á því að þú hafir fengið póst frá viðkomandi. Sama hvað erindið er og ef það er eitthvað flókið þá er bara hægt að segja Því miður...orð sem mikið er notað hjá sjóðum og stórfyrirtækjum og er mjög kurteist orðalaga og þar að auki alveg skírt. Ætla nú ekkert að fara æsi mig neitt segi bara einsog maðurinn: Ég vildi bara nefna þetta við ykkur.
|