Draugasögur

Lesari: Elfar Logi Hannesson

Lengd: 77 mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: komedia@komedia.is

 

Draugasögur er áttunda Þjóðlega hljóðbókin sem Kómedíuleikhúsið gefur út. Hér er á ferðinni mögnuð útgáfa á rosalegum draugasögum úr íslenskum þjóðsögum. Meðal sagna á Þjóðlegu hljóðbókinni Draugasögur má nefna: Móðir mín í kví kví, Skemmtilegt er myrkrið, Ábæjar-Skotta, Draugur tekur ofan, Fáðu mér höfuðskelina mína Gunna, Djákninn á Myrká ofl ofl alíslenskar spúkí sögur. Þjóðlegu hljóðbækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda um land allt enda er hér á ferðinni mögnuð útgáfa á íslenska þjóðsagnaarfinum. Pantaðu þér Draugasögur strax í dag og bættu þannig við þjóðlega safnið þitt.

Bakkabræður og kímnisögur

Lesarar: Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson

Lengd: 77 mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: komedia@komedia.is

 

Sjöunda Þjóðlega hljóðbókin er sannkallað ævintýr þar sem allt getur gerst. Að þessu sinni eru Bakkabræðra- og kímnisögur í aðalhlutverki. Allar sögurnar eru úr hinu magnaða þjóðsagnasafni meistara Jóns Árnasonar. Sögurnar af Bakkabræðrum kannast margir við og nú loksins eru þær allar fáanlegar á einni og sömu hljóðbókinni. Kímnisögur eru fjölmargar og hverri annarri skondnari. Meðal kímnisagna má nefna ,,Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður", ,,Klippt eða skorið", ,,Þjófur er hann Dalamann", ,,Neyttu á meðan á nefinu stendur" og fjölmargar fleiri. Þessa Þjóðlegu hljóðbók verður þú einfaldlega að eignast.

Þjóðsögur frá Hornströndum og Jökulfjörðum

Lesari: Elfar Logi Hannesson

Lengd: 117 mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: komedia@komedia.is

 

Sjötta Þjóðlega hljóðbókin hefur að geyma einstakar sögur frá Hornströndum og Jökulfjörðum. Sögurnar eru úr safni Arngríms F. Bjarnasonar þjóðsagnasafnara. Hér segir af draugum, tröllum og fleiri furðuverum úr hinum íslenska þjóðsagnaarfi. Þjóðsögur frá Hornströndum og Jökulfjörðum er vegleg og vönduð útgáfa á hinum einstaka þjóðsagnaarfi þjóðarinnar.

Þjóðsögur frá Súðavík

Lesari: Elfar Logi Hannesson

Lengd: 101 mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: komedia@komedia.is

 

Fimmta Þjóðlega hljóðbók Kómedíuleikhússins er sérlega vönduð og glæsileg. Að þessu sinni eru það Þjóðsögur frá Súðavík sem eru í aðalhlutverki. Hér segir af álfum, draugum og ýmsum furðuverum. Sögufrægar persónur koma einnig við sögu en þar fara fremstir í flokki þeir Galdra Leifi og Jón Indíafari. Þjóðsögur frá Súðavík er vönduð útgáfa á gömlu góðu þjóðsögunum sem standa ávallt fyrir sínu.

Þjóðsögur af Ströndum

Lesari: Elfar Logi Hannesson

Lengd: 93. mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: komedia@komedia.is

 

Strandir eru mjög frægt og þekkt þjóðsagnasvæði þar sem álfar, draugar, tröll og ýmsar furðuverur hafa verið á sveimi lengur en elstu menn muna. Á þessari hljóðbók les Elfar Logi, leikari, úrval sagna af Ströndum sem sóttar eru í söfn Arngríms F. Bjarnasonar, Helga Guðmundssonar og Jóns Árnasonar. Sögunum er skippt niður í fimm flokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Tröllasögur og loks ýmsar sagnir. Þjóðlegu hljóðbækur Kómedíuleikhússins hafa fengið feikigóðar viðtökur og víst er að Þjóðsögur af Ströndum er enn ein perlan í hljóðbókaútgáfu leikhússins.

Þjóðsögur úr Bolungarvík

Lesari: Elfar Logi Hannesson

Lengd: 93 mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: komedia@komedia.is

 

Á þessari hljóðbók les Elfar Logi, leikari, úrval sagna úr safni fræðimannsins Finnboga Berndóussonar frá Bolungarvík. Sögurnar eru í bókinni Sögur og sagnir úr Bolungarvík sem naut mikilla vinsælda enda er bók þessi löngu uppseld. Þessi hljóðbókaútgáfa er því mikill fengur. Bolungarvík er ekki stórt sagnasavæði en þar hefur margt sögulegt gerst enda skiptir stærðinni ekki öllu einsog við vitum. Sögunum á þessari hljóðbók er skipt í þrjá flokka: Dulræn fyrirbæri, Sjávarfurður og Tröllasögur. Þjóðsögur úr Bolungarvík er mikil perla í þessari hljóðbókaútgáfu Kómedíuleikhússins enda er hér á ferðinni vönduð útgáfa þjóðsagna að vestan.

Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ

Lesari: Elfar Logi Hannesson

Lengd: 93 mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: Uppseld hjá útgefanda en fæst mögulega á útsölustöðum um land allt

 

Ísafjarðarbær er stót og mikið sagnasvæði sem nær allt frá Dýrafirði til Hornstranda. Á þessari hljóðbók les Elfar Logi, leikari, úrval magnaðra þjóðsagna úr Ísafjarðarbæ. Sögurnar eru alls 33 og er skipt niður í fimm þjóðsagnaflokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Skrímslasögur og Tröllasögur. Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ er vönduð útgáfa sem inniheldur einstakan sagnaarf í vönduðum flutningi.

Þjóðsögur úr Vesturbyggð

Lesari: Elfar Logi Hannesson

Lengd: 99 mín

Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING)

Panta: komedia@komedia.is

 

Vesturbyggð er mikið sagnasvæði þar hafa skrímsli, tröll, álfar og ýmsar furðuverur verið á sveimi lengur en elstu menn muna. Á þessari hljóðbók les Elfar Logi, leikari, úrval þjóðsagna úr Vesturbyggð. Alls eru sögurnar 33 og er þeim skipt niður í fimm þjóðsagnaflokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Skrímslasögur og Tröllasögur. Hér er á ferðinni vönduð útgáfa sem inniheldur einstakan sagnaarf í vönduðum flutningi.