Skáldiđ á Ţröm
Frumsýnt í Félagsheimilinu Suðureyri í mars 2012
Sýnt fyrir hópa um land allt
Ég þekki mann sem er þannig: Hann er tæpir 70 þumlungar á hæð, en heldur mjór eftir hæðinni og fremur mittismjór; skrefhár; hálslangur í meðallagi; munnfríður. Nokkuð brúna mikill, með bjartar augnabrýr, gráeygður, en augun fögur, ljúf og skær. Svipfagur er hann, góðmannlegur og ljúfmannlegur, og elskulegur í dagfari sífellt ljúfur og blíður og kurteis; getur manna best ráðið við geð sitt, en er þó stundum snöggbráður. All-mikið hneigður til kvenna er hann, en ekki kemur það mikið í ljós. Með léttustu mönnum er hann til gangs, og skjótur í öllum hreifingum og þollítill, sem stafar af heilsuleysi hans. Maður þessi er: Magnús Hjaltason, er ritar sig; Magnús Hj. Magnússon.
Alþýðuskáldið Magnús Hj. Magnússon eða Skáldið á Þröm einsog hann er oft nefndur lifði engu venjulegu lífi og sjaldan var það neitt dans á rósum. Skáldið er fyrirmyndin af Ólafi Kárasyni í Heimsljósi Laxness.
Höfundar: Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson
Leikari: Ársæll Níelsson
Búningar/Leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Tónlist: Jóhann Friðgeir Jóhannesson
Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson



