Listamaðurinn með barnshjartað
Frumsýnt í kirkju Samúels í Arnarfirði í júní 2012
Sýnt fyrir hópa um land allt
Einhver merkasti sögustaður Vestfjarða er án efa Selárdalur í Arnarfirði. Í dag er staðurinn einkum þekktur fyrir verk alþýðulistamannsins Samúels Jónssonar eða Listamannsins með barnshjartað einsog hann er jafnan nefndur. Segja má að sannkölluð ævintýraveröld opnist þegar komið er í Selárdal sem skákar öllum Disneylöndum, slíkir eru töfrarnir. Listamaðurinn með barnshjartað var fjölhæfur með eindæmum hann málaði myndir, smíðaði kistla og skápa, reisti styttur, ljónagosbrunn og síðast en ekki síst eitt stykki kirkju.
Í þessu verki verður fjallað um Listamanninn með barnshjartað er bjó í Selárdal og þar byggði hann sína eigin ævintýraveröld sem enn stendur og laðar að fleiri þúsund manns árlega. Leikurinn verður frumsýndur á söguslóðum í kirkju Samúels en hópar geta pantað sýninguna sérstaklega bæði í Selárdal og um land allt.
Höfundar: Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Búningar/Leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Leikstjórn: Ársæll Níelsson



