Kómískir kunningar áfram á fjölunum

1 af 3

Bjarni á Fönix

Sýnt fyrir hópa allt árið um kring

 

Leikurinn hefur verið sýndur um land allt og einnig í Danmörku við frábærar undirtektir. Enda er hér að ræða um kraftmikla sýningu sem lætur engan ósnortinn. Skipherrann Bjarni Þorlaugarson af skútunni Fönix háði frækinn bardaga við hátt í 30 Fransmenn um miðja nítjándu öld. Bardaginn stóð í fjóra klukkutíma, að vísu tóku menn sér pásu í miðjum átökum. Skömmu síðar fannst sjórekið lík af einum Fransmanni og voru uppi kenningar um að Bjarni hafi orðið hans bani. Mál var dómtekið og þurfti Bjarni þá að spyrja sig þeirrar samviskuspurningar: Drap ég mann eða drap ég ekki mann?

Höfundar: Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson

Leikari: Ársæll Níelsson

Búningar/Leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson

 

Gísli Súrsson

Sýnt fyrir hópa árið um kring bæði á íslensku og eða ensku

 

Vinsælasta leikrit Vestfjarða hefur verið sýnt um 250 sinnum bæði hér heima og víða erlendis. Leikurinn segir af örlögum Gísla Súrssonar og fjölskyldu hans sem taka land í Haukadal í Dýrafirði. Gengur þeim allt í haginn í fyrstu og gjörast brátt hinir mestu höfðingjar. En skjótt skipast veður í lofti og brátt er farið að fella mann og annan. Þetta endar loks með því að Gísli er útlægur ger.

Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Jón Stefán Kristjánsson

Leikari: Elfar Logi Hannesson

Leikstjórn: Jón Stefán Kristjánsson

Verðlaun: Leiklistarhátíðin Integra Hannover Þýskalandi - Besta handrit. Leiklistarhátíðin Albamono Korce Albaníu - Besta sýningin.

 

Jón Sigurðsson strákur að vestan

Sýnt fyrir hópa um land allt árið um kring

 

Leikurinn hefur verið sýndur um land allt og einnig í Kaupmannahöfn í Danmörku við fanta góða viðtökur. Sómi Íslands sverð og skjöldur. Frelsishetjuna Jón Sigurðsson frá Hrafnseyri í Arnarfirði þekkja allir og þá einkum afrek hans í Danaveldi. En hver var Jón Sigurðsson og hvaðan kom hann? Hvað var það sem mótaði hann og gerði hann að öflugum talsmanni þjóðarinnar? Í þessu verki fáum við að kynnast piltinum Jóni Sigurðssyni, æskuárunum og tímanum áður en hann settist að í Kaupmannahöfn.

Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson

Búningar/Leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Leikstjórn: Ársæll Níelsson