Bjálfansbarnið og bræður hans

Sýnt í Listakaupstað Ísafirði, gengið inn Tangagötumegin

Forsala í Vestfirzku verzluninni - Miðasölusími: 891 7025 Miðaverð: 1.900. - kr

Frumsýning: Lau. 26. nóv. kl.14

2. sýning:    Sun. 27. nóv. kl.14

3. sýning:    Lau. 3.  des. kl.14

4. sýning:    Sun. 4.  des. kl.14

5. sýning:    Lau. 10. des. kl.14

6. sýning:    Sun. 11. des. kl.14

7. sýning:    Lau. 17. des. kl.14

8. sýning:    Sun. 18. des. kl.14

9. sýning:    Fös. 30. des. kl.14

 

Tífill, Tútur, Baggi, Lútur,

Rauður, Redda, Steingrímur, Sledda,

Lækjaræsir, Bjálminn sjálfur, Bjálfansbarnið,

Litlipungur, Örvadrumbur

 

Þessi merkilegi hópur er í flokki vestfirsku jólasveinanna en þeir eru fleiri. Allir þekkja jólasveinana 13 sem hafa verið á ferli síðustu aldir. Færri þekkja hinsvegar Bjálfansbarnið og bræður hans enda hafa þeir ekki sést meðal manna í hundrað ár eða meira. Þetta eru sannkallaðir jólasveinar einsog nöfn þeirra gefa til kynna og nú loksins koma þeir aftur til byggða. Eitt er víst þetta verður sögulegt og ævintýralegt og hver veit nema jólakötturinn skottist með. Einstakt og ævintýralegt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna.

 

Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson

Höfundur jólasveinakvæða: Þórarinn Hannesson

Búningar/Leikmynd/Grímur: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Leikstjórn: Ársæll Níelsson