FRÉTTIR
09. 07 2010. 23:37 Viðburðaríku Kómedíuleikári senn að ljúka Það er óhætt að segja að yfirstandandi leikár Kómedíuleikhússins hafi verið sögulegt og kómískt. Aldrei áður hafa jafnmörg leikverk verið frumsýnd á einu leikári hjá litla Kómedíuleikhúsinu fyrir vestan. Alls voru fjórar leiksýningar frumsýndar auk þess sem þrjár gamlar Kómedíusýningar voru á fjölunum. Leikárið hófst með frumsýningu á Heilsugæslunni sem sló heldur betur í gegn hefur verið sýnd 40 sinnum og er rétt að byrja. Næstur á svið var Síðasti dagur Sveins skotta sem einnig fékk góðar móttökur og verður einnig á fjölunum á komandi leikári. Tvær sýningar voru svo frumsýndar á vor og sumardögum. Fyrst var það The Poet Comes Home sem er byggð á Kolbrúnarþætti í Fóstbræðrasögu og er sýnd í Arnardal fyrir erlenda ferðamenn sem og innlenda. Í júní var svo einleikurinn Gaggað í grjótinu frumsýnt í nýopnuðu Melrakkasetri í Súðavík. Sá leikur er nú sýndur á hverjum fimmtudegi yfir sumarið. Pétur og Einar, Dimmalimm og Gísli Súrsson hafa svo verið í bullandi stuði á leikárinu einsog undanfarin leikár. Gaman er að segja frá því að sumarið hefur verið mjög annasamt hjá Kómedíuleikhúsinu og höfum við verið að sýna fjórar til fimm sýningar vikulega. Hinu Kómíska leikári lýkur svo um miðjan ágúst þegar leiklistarhátíðin Act alone verður haldin. Þetta er sjöunda árið í röð sem hátíðin fer fram og víst er að sú saga er bara einleikin. Act alone í ár fer fram dagana 13. - 15. ágúst á Ísafirði og í Haukdal Dýrafirði. Á dagskránni í ár erum fjölbreyttar sýningar m.a. frá Silamiut leikhúsinu í Grænlandi. Allar upplýsingar um Act alone eru á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net
Undirbúningur fyrir næsta Kómedíuleikár er langt kominn og ber þar vissulega til tíðinda en leikárið verður formlega kynnt í september. Fylgist því vel með okkur hér á heimasíðunni og í leikhúsinu.
Til baka
|