FRÉTTIR
08. 07 2010. 23:01 Lokasýning á Pétri og Einari í Einarshúsi Bolungarvík Sögulega leikritið Pétur og Einar sem hefur verið sýnt þrjú leikár í röð í Einarshúsi í Bolungarvík er nú á lokasýningu. Alls hefur leikurinn verið sýndur 29 sinnum og verður lokasýning núna á föstudag 9. júlí kl.20 í Einarshúsi. Miðasala er þegar hafin í Einarshúsi í Víkinni.
Í leikritinu Pétur og Einar túlkar Elfar Logi Hannesson leikari líf og störf þeirra manna sem settu hvað mestan svip á Bolungarvík á miklum uppgangstímum og sveipar sögu þeirra ævintýraljóma. Frumkvöðlarnir Pétur Oddsson og Einar Guðfinnsson voru miklir athafnamenn hvor á sínum tíma og stjórnuðu stórveldum sínum af skörungsskap. Þeir bjuggu báðir í húsi harma og hamingju, Péturshúsi, sem síðar var nefnt Einarshús. Sýning hefst kl. 20 en boðið verður upp á sjávarréttasúpu ásamt öðrum veitingum.
Til baka
|