FRÉTTIR
30. 06 2010. 21:51 Gaggað í grjótinu alla fimmtudag í Melrakkasetri Súðavík Kómedíuleikhúsið sýnir leikritið Gaggað í grjótinu alla fimmtudag í sumar í Melrakkasetrinu Súðavík. Einnig er hægt að fá sýninguna á öðrum tímum fyrir hópa og verður fyrsta hópasýningin núna á miðvikudag. Hvort heldur þú vilt panta heila sýningu eða einn miða eða fleiri þá bjallaðu í Melrakkasetrið í síma: 456 4922.
Gaggað í grjótinu fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt ömmu sína. Saga skyttunnar er nefnilega ekki síður merkileg en skolla sjálfs. Meðan skyttan liggur og vaktar grenið styttir hann sér stundir og segir sögur af sjálfum sér og öðrum refaskyttum. Ævintýrin sem skyttunar hafa lent í í viðureigninni við melrakkann eru kannski lygilegar eða hvað?
Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands.
Sýningar verða einsog áður sagði alla fimmtudag í sumar. Miðasala er í Melrakkasetrinu í Súðavík og í síma: 456 4922.
Til baka
|