FRÉTTIR
24. 02 2010. 11:12 Heilsugæslan í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á laugardag Kómedíuleikhúsið sýnir hápólitíska gamanleikinn Heilsugæslan á Egisstöðum um helgina. Sýnt verður í Sláturhúsinu Menningarhúsi á Egilsstöðum á laugardaginn 6. mars. Leikurinn verður sýndur tvívegis fyrri sýningin verður kl.20 og seinni kl.22. Miðasala á sýningarnar er hafin í síma: 899 5715 einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst á netfangið mmf@egilsstadir.is
Rétt er að geta þess að aðeins verður um þessar tvær sýningar á Austurlandi að ræða á gamanstykkinu Heilsugæslan.
Gamanleikurinn Heilsugæslan var frumsýndur í október á síðasta ári og hefur notið fádæma vinsælda enda er hér um að ræða efni sem kemur okkur öllum við. Leikurinn hefur verið sýndur yfir 30 sinnum um land allt og notið mikilla vinsælda, fullt hús á hverri sýningu.
Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum?
Leikritið, Heilsugæslan, er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki.
Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Sýningin er ein klukkustund.
Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar.
Heilsugæslan fyrir alla!
Til baka
|