FRÉTTIR
15. 02 2010. 17:31 Vestfirskur húslestur hefst að nýju Á laugardaginn hefst Vestfirskur húslestur á nýjan leik eftir nokkurt hlé. Að vanda verður Húslesturinn í Gamla sjúkrahúsinu - Bókasafninu á Ísafirði og hefst lesturinn kl.14. Að vanda verður fjallað um vestfirskan listamann og óhætt er að segja að endurkoma húslestursins sé glæst því Vestfirðingur dagsins verður Aðalsteinn Kristmundsson. Betur þekktur sem Steinn Steinarr. Hann fæddist á Laugalandi í Nauteyrarhreppi 13. október 1908 en flutti síðar í borgina og varð eitt af mestu ljóðskáldum síðustu aldar. Húslesturinn á laugardag verður með hefðbundu húlestrarsniði fjallað verður um skáldið og Elfar Logi Hannesson mun lesa úr verkum Steins Steinarrs. Aðgangur að húslestrinum er ókeypis og öllum opinn.
Vestfirskur húslestur er samstarfsverkefni Kómedíuleikhússins og Bókasafnsins og hófst lesturinn í janúar 2007 þegar fjallað var um þjóðskáldið Matthías Jochumsson. Meðal annarra skálda sem fjallað hefur verið um á Vestfirskum húslestri má nefna Höllu á Laugabóli, Jón úr Vör, Gest Pálsson, Stefán frá Hvítadal og Jakobínu Sigurðardóttur. Húslesturinn á laugardag verður sá fjórtándi í röðinni og örugglega ekki sá síðasti því stefnt er að því að bjóða reglulega uppá húslestra yfir vetrartímann á nýjan leik.
Til baka
|