Fréttir
Kómedíuleikhúsið
Hljóðbókaklúbbur Kómedíuleikhússins
Sýningar
Verslun
Dagatal
Dimmalimm
Gísli Súrsson
Act alone
Tenglar
Hugsað upphátt
Hafa samband








Heimilisfang / contact information:
Túngata 17
400 Ísafjörður
Iceland
Tel. 8917025
FRÉTTIR

25. 07 2010. 14:46
Aukasýning á Gaggað í grjótinu í Melrakkasetri
Kómedíuleikhúsið hefur sýnt leikritið Gaggað í grjótinu alla fimmtudaga í sumar við mjög góðar undirtektir. Fullt var á lokasýninguna síðasta fimmtudag og því hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu núna á fimmtudag 29. júlí kl.20. Miðasala er þegar hafin í Melrakkasetrinu í síma: 456 4922.

Í Gaggað í grjótinu fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt ömmu sína. Saga skyttunnar er nefnilega ekki síður merkileg en skolla sjálfs. Meðan skyttan liggur og vaktar grenið styttir hann sér stundir og segir sögur af sjálfum sér og öðrum refaskyttum. Ævintýrin sem skyttunar hafa lent í í viðureigninni við melrakkann eru kannski lygilegar eða hvað?

Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands.

Miðasala er í Melrakkasetrinu í Súðavík og í síma: 456 4922.
» meira

09. 07 2010. 23:37
Viðburðaríku Kómedíuleikári senn að ljúka
Það er óhætt að segja að yfirstandandi leikár Kómedíuleikhússins hafi verið sögulegt og kómískt. Aldrei áður hafa jafnmörg leikverk verið frumsýnd á einu leikári hjá litla Kómedíuleikhúsinu fyrir vestan. Alls voru fjórar leiksýningar frumsýndar auk þess sem þrjár gamlar Kómedíusýningar voru á fjölunum. Leikárið hófst með frumsýningu á Heilsugæslunni sem sló heldur betur í gegn hefur verið sýnd 40 sinnum og er rétt að byrja. Næstur á svið var Síðasti dagur Sveins skotta sem einnig fékk góðar móttökur og verður einnig á fjölunum á komandi leikári. Tvær sýningar voru svo frumsýndar á vor og sumardögum. Fyrst var það The Poet Comes Home sem er byggð á Kolbrúnarþætti í Fóstbræðrasögu og er sýnd í Arnardal fyrir erlenda ferðamenn sem og innlenda. Í júní var svo einleikurinn Gaggað í grjótinu frumsýnt í nýopnuðu Melrakkasetri í Súðavík. Sá leikur er nú sýndur á hverjum fimmtudegi yfir sumarið. Pétur og Einar, Dimmalimm og Gísli Súrsson hafa svo verið í bullandi stuði á leikárinu einsog undanfarin leikár. Gaman er að segja frá því að sumarið hefur verið mjög annasamt hjá Kómedíuleikhúsinu og höfum við verið að sýna fjórar til fimm sýningar vikulega. Hinu Kómíska leikári lýkur svo um miðjan ágúst þegar leiklistarhátíðin Act alone verður haldin. Þetta er sjöunda árið í röð sem hátíðin fer fram og víst er að sú saga er bara einleikin. Act alone í ár fer fram dagana 13. - 15. ágúst á Ísafirði og í Haukdal Dýrafirði. Á dagskránni í ár erum fjölbreyttar sýningar m.a. frá Silamiut leikhúsinu í Grænlandi. Allar upplýsingar um Act alone eru á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net

Undirbúningur fyrir næsta Kómedíuleikár er langt kominn og ber þar vissulega til tíðinda en leikárið verður formlega kynnt í september. Fylgist því vel með okkur hér á heimasíðunni og í leikhúsinu.
» meira

08. 07 2010. 23:01
Lokasýning á Pétri og Einari í Einarshúsi Bolungarvík
Sögulega leikritið Pétur og Einar sem hefur verið sýnt þrjú leikár í röð í Einarshúsi í Bolungarvík er nú á lokasýningu. Alls hefur leikurinn verið sýndur 29 sinnum og verður lokasýning núna á föstudag 9. júlí kl.20 í Einarshúsi. Miðasala er þegar hafin í Einarshúsi í Víkinni.

Í leikritinu Pétur og Einar túlkar Elfar Logi Hannesson leikari líf og störf þeirra manna sem settu hvað mestan svip á Bolungarvík á miklum uppgangstímum og sveipar sögu þeirra ævintýraljóma. Frumkvöðlarnir Pétur Oddsson og Einar Guðfinnsson voru miklir athafnamenn hvor á sínum tíma og stjórnuðu stórveldum sínum af skörungsskap. Þeir bjuggu báðir í húsi harma og hamingju, Péturshúsi, sem síðar var nefnt Einarshús. Sýning hefst kl. 20 en boðið verður upp á sjávarréttasúpu ásamt öðrum veitingum.
» meira

30. 06 2010. 21:51
Gaggað í grjótinu alla fimmtudag í Melrakkasetri Súðavík
Kómedíuleikhúsið sýnir leikritið Gaggað í grjótinu alla fimmtudag í sumar í Melrakkasetrinu Súðavík. Einnig er hægt að fá sýninguna á öðrum tímum fyrir hópa og verður fyrsta hópasýningin núna á miðvikudag. Hvort heldur þú vilt panta heila sýningu eða einn miða eða fleiri þá bjallaðu í Melrakkasetrið í síma: 456 4922.

Gaggað í grjótinu fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt ömmu sína. Saga skyttunnar er nefnilega ekki síður merkileg en skolla sjálfs. Meðan skyttan liggur og vaktar grenið styttir hann sér stundir og segir sögur af sjálfum sér og öðrum refaskyttum. Ævintýrin sem skyttunar hafa lent í í viðureigninni við melrakkann eru kannski lygilegar eða hvað?

Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands.

Sýningar verða einsog áður sagði alla fimmtudag í sumar. Miðasala er í Melrakkasetrinu í Súðavík og í síma: 456 4922.
» meira

  eldri »

Free Hit Counter